![]() |
| Við Höfðavík kl. 6:39 |
miðvikudagur, 4. september 2013
Morgunstund
sunnudagur, 1. september 2013
Fyrsti í september
Helgin sem nú er að líða var algerlega frábær, okkur var boðið að Hreðavatni með Snorra, Ínu og co í voðalega huggulegan bústað með arni og allt! Hef aldrei áður verið í bústað þar sem logar arineldur, mjög fátt sem toppar það. Annars var þetta mikil slökun, lestur, pottaferðir, göngutúrar, át og svona þetta hefðbundna. Alveg yndislegt.
![]() |
| Við fundum villt jarðaber rétt við bústaðinn! |
![]() |
| Alltaf sólarmegin. Skömmu síðar sofnaði ég og náði svona "Flíspeysu-tani". Mjög flott. |
![]() |
| Vinurinn fékk þeyttan rjóma út í berin sín |
![]() |
| Sól og blíða og Hreðavatn þarna í fjarskanum |
![]() |
| Göngutúr að Hreðavatni. Sólin er alltaf að búa til eitthvað fallegt sem gleður mömmuhjartað |
![]() |
| Þessi ástarpungur grillaði glaður hamborgara fyrir okkur þegar við komum heim. Úrhellisrigning engin fyrirstaða! |
laugardagur, 31. ágúst 2013
Sólarmegin
Alltaf sólarmegin. Það er þema síðustu mánaða og verður áfram út í hið óendanlega.
Þessa helgi höfum við verið í bústað við Hreðavatn með góðum vinum og áttum alveg eins von á hræðilegu veðri, enda kröpp lægð að ganga yfir landið. En aldeilis ekki, hér hefur verið dásamlegt veður, sólskin og hlýtt, þótt aðeins hafi blásið af vestri. Ég sofnaði jafnvel í sólbaðinu áðan og er smá rjóð í kinnum eftir það svo og göngu- og pottaferðir dagsins. Svo fundum við 5 berjategundir i dag: bláber, aðalbláber, krækiber, hrútaber, og villt jarðaber. Allt hérna í seilingarfjarlægð frá bústaðnum!
Lífið er yndislegt!
þriðjudagur, 27. ágúst 2013
Síðasti dagur sumars?
sunnudagur, 25. ágúst 2013
Hálft maraþon - Check!
miðvikudagur, 14. ágúst 2013
Brúðkaupsafmæli
Og í dag eru líka 6 ár síðan þessi brúðkaupsmynd var tekin að lokinni virðulegri háleynilegri athöfn hjá sýslumanninum á Akranesi:
Ýmislegt hefur breyst á þessum árum, aðallega háralitur og hárvöxtur eins og sést svo greinilega, en einnig alls konar þroski sem við höfum tekið út í sameiningu á þessum 16 árum. Ég er ó svo þakklát fyrir að hafa fundið hann Tóta minn þarna um árið því án hans veit ég ekki hvar ég væri. Hann er kletturinn minn og minn dyggasti aðdáandi sem styður alla þá vitleysu sem mér dettur í hug. Hefði hans ekki notið við, sérstaklega síðasta árið, væri ég varla svona ótrúlega hamingjusöm, sátt og ánægð með lífið og tilveruna eins og ég í dag. Og svo er hann líka svo sætur og fyndinn gaur með risastórt hjarta :)
Ég elska þig +Þórarinn Jónsson
þriðjudagur, 13. ágúst 2013
Úr garðinum
Þær eru kannski ekki alveg eins stórar og frænkur þeirra í grænmetisborðinu í Bónus, en við skósveinar mínir ræktuðum þær sjálf og munum saxa þær út í kjúklingasúpuna í kvöld. Namminamm!












