Mér finnst svo gaman að skoða myndir og hreinlega verð bara að deila einni uppáhalds. Ég kalla hana Hamingjumyndina! Hún hangir útprentuð fyrir ofan skrifborðið mitt þar sem ég get horft á hana þegar ég vil, en annars sé ég hana líka fyrir mér þegar ég halla aftur augunum, það nægir alveg.
Þessi hamingjumynd er tekin í Hallormsstaðarskógi þar sem við áðum í hringferðinni okkar síðasta sumar. Það sem mér finnst svo frábært við þessa mynd er sjálf stundin sem hún er tekin á. Áður en ég smellti af hafði ég setið dágóða stund á steini í fjörunni og fylgst með hjörðinni minni. Allir undu glaðir við sitt: Sólin klifraði í klettum og sveiflaði sér í trjágreinum eins og hennar er von og vísa (rauðar leggings og græn peysa þarna inni í skógarþykkninu!), Pabbinn dundaði sér með myndavélina sína og Vinurinn dró upp vasahnífinn og tálgaði trjágrein. Fuglarnir sungu og Lagarfljótið gutlaði í fjörunni, annars var ró og friður og ég var yfirfull af orku, hamingju og gleði.
Þá hugsaði ég með mér: "þetta er ein af þessum gæðastundum lífs míns sem ég ætla að varðveita og ylja mér við um alla tíð", dró því næst upp myndavélina og smellti af þessari hamingjumynd (svona til öryggis, af því ég get verið ansi gleymin...).
Síðan í sumar hef ég margoft rifjað upp einmitt þessa stund og fyllist ljúfri, góðri tilfinningu í hvert sinn. Ef eitthvað hvílir á mér eða ég verð pínu döpur, þá sest ég niður, loka augunum og fer þangað aftur í huganum, sæki þessa gæðastund og nýt hennar aftur. Og aftur. Og aftur. Eins oft og ég vil. Og samstundis birtir til hjá mér hér í núinu, ég fyllist orku og allt verður eins og það á að vera, auðvelt og gott.
Vonandi eiga sem flestir sína hamingjumynd. Ekkert endilega útprentaða, það er nægir að eiga huglæga mynd af hamingjuríkri andrá til að grípa til þegar þörf er á orkuskoti. Mæli með því!
þriðjudagur, 21. janúar 2014
laugardagur, 18. janúar 2014
Afmælishelgi
Jæja, þá er vinurinn orðinn 13 ára. Hann hélt upp á bekkjarafmælið á fimmtudaginn, sjálfan afmælisdaginn, og í dag var fjölskyldunni svo boðið til veislu. Hann er rosalega ánægður með bæði partýin og þakklátur fyrir kveðjur og gjafir, enda fékk hann mikið af því sem hann helst óskaði sér, nefnilega pening! Hann er að safna sér fyrir notaðri alvöru Canon myndavél og mér skilst að hann eigi nánast fyrir henni núna svo það er mikil spenna á heimilinu og allt á fullu að gera tilboð í vélar sem pabbinn drengurinn gæti hugsað sér að eignast.
Talandi um myndir, ég hef ákveðið að þrettándi afmælisdagurinn sé sá afmælisdagur barna minna sem ég hætti að setja vandræðalega mynd af þeim nývöknuðum og grútmygluðum inn á veraldarvefinn, svo það verður enginn svoleiðis birting með þessum pósti. Kannski ég setji frekar inn tvær fallegar myndir frá síðasta sumri á einni af ferðum okkar um landið okkar fagra. Þarna vorum við að keyra yfir vað og Vinurinn hékk út um gluggann afturí. Myndirnar tók ég á símann út um minn glugga og mér finnst þær lýsa svo ótrúlega mikilli gleði, tilhlökkun og kátínu, einhverju sem þessi uppáhaldsvinur minn er stútfullur af!
Talandi um myndir, ég hef ákveðið að þrettándi afmælisdagurinn sé sá afmælisdagur barna minna sem ég hætti að setja vandræðalega mynd af þeim nývöknuðum og grútmygluðum inn á veraldarvefinn, svo það verður enginn svoleiðis birting með þessum pósti. Kannski ég setji frekar inn tvær fallegar myndir frá síðasta sumri á einni af ferðum okkar um landið okkar fagra. Þarna vorum við að keyra yfir vað og Vinurinn hékk út um gluggann afturí. Myndirnar tók ég á símann út um minn glugga og mér finnst þær lýsa svo ótrúlega mikilli gleði, tilhlökkun og kátínu, einhverju sem þessi uppáhaldsvinur minn er stútfullur af!
Á morgun hefst svo skólinn hjá mér eftir frábært jóla-nýárs-janúar-frí! Sjálf kennslan er auðvitað löngu hafin, en ég verð fljót að vinna upp þessar tvær vikur sem ég ákvað að framlengja fríið mitt um. Ég nenni auðvitað ekki að byrja í kvöld, í kvöld eru það mikilvægari verkefni: kósí í sófanum með besta fólkinu og góðri bíómynd.
Ást og út!
sunnudagur, 12. janúar 2014
Þetta verður eitthvað...
Einkasonurinn verður táningur í næstu viku. Þrettán vetra uppátækjasamur happafengur.
Hann hefur sýnt miklar framfarir í uppátækjum síðustu misseri, svo miklar að móðirin hefur stundum áhyggjur af öryggi, eldhættu og útlimamissi.
Í vikunni keypti hann sér einnota myndavél, tók úr henni filmuna og víraði flassið upp á nýtt. Hann dvaldi um stund í bílskúrnum með lóðboltann og verkfærin sem systir hans gaf honum í jólagjöf og æpti loks upp yfir sig: "Það tókst, það tókst!!!". Svo hló hann holum rómi: Múhahahahahaaaa... því honum tókst að búa til það sem hann kallar "Stun-Gun", stuðbyssu, ætlaða til að yfirbuga árásarmenn og aðra glæpamenn sem á vegi hans verða. Þar til hann hittir þá fyrir æfir hann sig á saklausri töng inni í bílskúr, varinn með hönskum og öryggisgleraugum frá Landsbjörgu til vara. Það er bara þannig sem hann rúllar.
laugardagur, 11. janúar 2014
Laugardagur
Mig dreymir svo furðulega þessa dagana þessar næturnar. Man draumana alveg þegar ég vakna, en er búin að gleyma þeim fljótlega eftir að ég kemst á ról. Mig dreymir fólk sem ég þekki í alvörunni, í aðstæðum sem ég þekki ekki og allt er voða skrýtið og öfugsnúið. Kannski væri ráð að skrifa draumana niður, þetta er að verða efni í sagnabálk...
Í morgun var svo mikið að gera í draumalandi að ég svaf til hádegis! Ég missti því alveg af sólarupprásinni og finnst þessi dagur því hafa verið óþarflega stuttur. Við Neró skelltum okkur í göngu fljótlega eftir hádegi, enda afskaplega fallegur og bjartur dagur hér á Skagatá:
Við fengum góða gesti í kaffi seinnipartinn og þegar þeir kvöddu fórum við fjölskyldan í keilu. Vinurinn vann að sjálfsögðu með yfirburðum, enda æfir hann þessa íþrótt tvisvar í viku. Ekki skil ég samt hvernig hægt er að ná upp færni í þessu sporti, ekki frekar en í golfi, snóker eða fótbolta. Maður kemur kúlu á hreyfingu, hvort sem maður kastar henni, slær í hana með priki, eða sparkar í hana, og svo vonar maður það besta. Hjá mér snýst þetta um heppni og dagsform, því sama hversu oft ég prófa, ég verð ekki betri í þessum greinum! Vinurinn segir að þetta snúist um tækni og æfingu, hafa réttan snúning og taka ákveðið mörg skref... einmitt það!
![]() |
| Sólin var með gott skor og skemmti sér vel |
![]() |
| Þessi skoraði 118 stig í sínum leik, |
Eftir hörkukeilukeppni héldum við heim í eldhús, mölluðum lambalæri og gerðum konfekt. Já, rétt lesið, konfekt! Við vorum allt of sein að gera jólakonfektið í desember, og ákváðum þess vegna að vera tímanlega með þorrakonfektið... Það stefnir því allt í kósí sófakvöld með konfekti og kertaljósum, ljúfa líf, ljúfa líf <3 p="">
3>
![]() |
| Hnetusmjör+döðlur+kókosmjöl+haframjöl+súkkulaði |
3>
laugardagur, 4. janúar 2014
Sólarupprás
Hvað er betra á fallegum vetrardegi en að vakna fyrir sólarupprás og fara í göngu niður að strönd, sitja þar á steini og fylgjast með dýrðinni?
Fátt sem toppar það held ég.
Vil samt taka það fram að í morgun 4. janúar var sólarupprás á Íslandi kl 11:22... ég gat því sofið til hálfellefu en samt náð henni!
Ljúfa líf, ljúfa líf!
föstudagur, 3. janúar 2014
Af bókum 2013
Fyrir ári síðan, þegar ég var að lesa jólabækurnar og fór ég að reyna að gera mér í hugarlund hversu margar bækur ég læsi á ári áttaði ég mig á því að ég hafði ekki hugmynd um hvort þessar bækur væru 5 eða 10 eða fleiri. Ég man varla hvað ég las fyrir mánuði síðan hvað þá það sem ég las fyrir ári síðan. Svo ég fór að skrifa niður það sem ég las og veit núna að árið 2013 las ég 13 bækur. Upplýsingar um þennan svakalega lestur er að finna hér.
Þetta er heldur minna en ég hafði ímyndað mér, þar sem ég er alltaf og undantekningalaust með bók á náttborðinu hjá mér og les alltaf áður en ég fer að sofa. Þegar ég renni yfir titlana, þá sé ég að 12 af þessum 13 bókum las ég fyrstu 8 mánuði ársins, en frá september til desember las ég aðeins eina bók... Skýringin er tvíþætt: skólabækur komust ekki á þennan lista, og svo það að í haust fór ég yfirleitt seint að sofa vegna lærdóms og orkaði ekki að lesa fyrir svefninn! Annars væri listinn auðvitað mun lengri ;)
Nú er kominn nýr listi fyrir árið 2014, ég kláraði fyrstu bók ársins fyrr í kvöld þegar Lygin hennar Yrsu lá í valnum fyrir mér og ég er staðráðin í því að lesa fleiri bækur á þessu ári en því síðasta. Í kvöld byrja ég á "Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf", titillinn lofar góðu og ég er ekki að djóka!
Nú er kominn nýr listi fyrir árið 2014, ég kláraði fyrstu bók ársins fyrr í kvöld þegar Lygin hennar Yrsu lá í valnum fyrir mér og ég er staðráðin í því að lesa fleiri bækur á þessu ári en því síðasta. Í kvöld byrja ég á "Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf", titillinn lofar góðu og ég er ekki að djóka!
þriðjudagur, 31. desember 2013
Áramótakveðja
Síðustu ár hef ég verið ansi heit fyrir áramótaheitum, en þau snúast aldrei nokkurn tímann um mataræði eða hreyfingu eða það sem er bannað. Ónei, mín heit snúast um það sem ég ætla að gera, ekki það sem ég ætla ekki að gera. Þau snúast um það sem ég vil bæta við líf mitt, ekki það sem ég vil losna við. Þau snúast um markmið og stefnu á nýju ári, að halda áfram að vera ég sjálf, ég held áfram því sem vel gengur og bæti inn við áskorunum og áherslum eftir þörfum. Fyrir ári setti ég mér markmið sem var ansi fjölþætt en í grunninn samt mjög einfalt því það snerist aðeins um eitt atriði: hamingju. Eins og ég var rosalega fegin þegar árinu 2012 lauk, þá fyllist ég smá söknuði nú þegar árinu 2013 er að ljúka, enda held ég að ég geti fullyrt að þetta ár hafi verið það allra besta sem ég hef upplifað, ég kem svo ótrúlega þakklát, rík og hamingjusöm undan þessu ári að mér vöknar pínulítið um augun þegar ég hugsa um það.
Takk allir þeir sem áttu þátt í þessu frábæra ári og megi árið 2014 færa ykkur ást, farsæld og frið, hamingju og gleði, óvæntar uppákomur og nýjar áskoranir.
Ást og út!
fimmtudagur, 26. desember 2013
Gleðileg jól!
Aðventan og jólin hafa farið ósköp vel með okkur hér á E9 og ég held að allir séu sáttir með sitt. Prófin kláruðust hjá mér 13. des og þá eiginlega lagðist ég í nokkurra daga hýði, var alveg gjörsamlega búin með batteríin og orkaði varla að gera neitt eftir vinnu, eins og ég var nú stórhuga og hafði ætlað mér að gera allt. Þar sem ekki var mikið af orku til skiptanna ákvað ég að hafa lítið um bakstur og þrif fyrir þessi jólin, en meira um góðar samverustundir og rólegheit. Þetta er spurning um að forgangsraða rétt :)
Okkar fyrsta verk eftir próflok var að baka piparkökuhús, í ár urðu þau þrjú og við röðuðum þeim upp í smávegis þorp ofan á píanóinu.
Svo gerðumst við mæðgur svo frægar að fara á tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu. Það var alveg stórkostleg upplifun og við vorum alveg ákveðnar að fara aftur síðar, jafnvel strax í febrúar, en þá eiga að vera Disney-tónleikar sem okkur langar mikið á, menningarssvamparnir sem við erum!
Ég má nú líka til með að minnast á yndislega stund sem ég átti með systrum mínum rétt fyrir jól en við hittumst í miðbænum og röltum niður Laugaveginn. Veðrið var yndislegt, frost og stillt og stemningin alveg frábær, jólasöngvar sungnir, hægt að kaupa ristaðar möndlur af götusala, við skoðuðum í búðir og fengum okkur svo að borða á Primo, uppáhaldsveitingastaðnum mínum. Set hér inn eina góða af systrunum, það er nú ekki amalegt að eiga þessar dásamlegu konur að, heppin ég!
Undirbúningur jólanna fór svo fram með hefðbundnu sniði nema hvað við drógum úr jólakortaritun. Yfirleitt höfum við sent milli 30 og 40 kort á ári en þeim kortum fækkar stöðugt sem við fáum til baka og í fyrra komu heil 7... Þannig að í ár ákvað ég að jólakortaskrif væru ekki ofarlega á verkefnalistanum og sendi bara örfá, aðallega til þeirra sem hafa alltaf sent okkur og bara þau sem við gátum sjálf borið út (ég var ekki nógu tímanlega með útlendu kortin og svo er ég hvort eð er í smá fýlu út í Póstinn...). Viti menn, við fengum alveg heilan slatta af kortum, nema hvað! Ætli við tökum okkur ekki á í kortaskrifum á næsta ári, okkur finnst þetta ótrúlega góður og skemmtilegur siður sem við viljum alls ekki leggja af. Hér eru jólakort aldrei opnuð fyrr en seint á aðfangadagskvöld, þegar búið er að taka upp allar gjafir og við komin í náttfötin með kaffi og konfekt, þá lesum við jólakort og elskum að fá myndakort og jólasögur. Sorrý þeir sem fengu ekki kort frá okkur í ár, við munum leggja extra mikið í jólakortin 2014 í staðinn, þau verða sögulega skemmtileg og tímanleg og falleg!
Jólatréð var svo sett upp á Þorláksmessukvöld og pökkum raðað undir það samstundis, Aðfangadagur var hefðbundinn, möndlugrautur í hádeginu, hreint lín sett á öll rúm og sængur viðraðar úti. Dagurinn leið svo við matseld og rólegheit, ég gerði sultaðan rauðlauk og svo prófaði ég líka að gera heimagert rauðkál sem tókst með ágætum. Í matinn var hamborgarhryggur með brúnuðum kartöflum og hrísgrjónasalatinuhennarmömmu (hrísgrjón+steikt grænmeti) og í eftirrétt blaut súkkulaðiterta og ananasfrómasinnhennarmömmu. Allt heppnaðist voða vel og heimilsfólk var voða sátt. Nema með ananasfrómasinn og hrísgrjónasalatið, ég var sú eina sem borðaði þá rétti... skil ekki hvað er að þessu liði!
![]() |
| Enn minnkar þetta jólatré! |
Á jóladag fórum við svo suður í hangikjötsveislu hjá mömmu og pabba og svo aftur upp á Skaga seinnipartinn í hangikjötsveislu hjá tengdó. Veðrið var hræðilegt, rok og mikil hálka en við létum okkur hafa það því það er ekki hægt að missa af þessum fjölskylduboðum, það er nauðsynlegur hluti jólahaldsins að hitta fjölskylduna og gleðjast saman. Ég heyri allt of marga bölva þessum jólaboðum út í eitt og skil ekki hvað þetta fólk er að meina, það væri nú lítið gaman að hanga einn heima öll jólin á náttfötunum og fara ekki út úr húsi. Það er bara gaman að þeysa milli jólaboða á jóladag, aðra daga er svo rólegra, eins og í dag á annan dag jóla er ekkert boð og við höfum bara verið í rólegheitunum heima á náttaranum að borða konfekt og afganga, alveg yndislegt :)
sunnudagur, 1. desember 2013
Smá jóló á E9
Húsfreyjan á E9 er niðursokkin í ritgerðaskrif og prófalestur þessa dagana. Það er lítill tími til að jólast, en við krakkarnir hentum þó upp smá ljósum í kvöld og kveiktum á fyrsta kertinu á aðventu"disknum". Það verður að duga í bili!
Aðventukveðja ♡
Aðventukveðja ♡
föstudagur, 8. nóvember 2013
Mánaðarskammtur
![]() |
| Sólsetur á Breiðinni í gær kl. 16:48 |
Ekki fá áfall, en hér kemur ein færsla frá bloggara sem lifir í öðru tímabelti en aðrir jarðarbúar... sver það, það getur alls ekki verið kominn mánuður frá því ég var í hlaupatúr að pára síðustu færslu! En alla vega, tíminn hefur liðið hratt þetta haustið, enda er mjög mikið að gera hjá okkur öllum. Við stöldrum samt við öðru hverju og njótum, en ég gleymdi bara að skrifa um það í mánuð, sorrý framtíðar-ég sem elskar að lesa gamlar færslur!
Þennan mánuðinn er margt og mikið búið að gerast, við fórum í Húsafell í vetrarfríinu okkar (við Tóti tókum líka frí, þvílíkur lúxus!). Svo átti Sólin auðvitað afmæli, orðin 10 ára þessi elska. Hún hélt afmælispartý fyrir bekkjarfélagana og svo annað fyrir fjölskylduna, allt með nokkuð hefðbundnu sniði. Við erum búin að fara á töfrasýningu hjá Einari Mikael, við hjónin fórum í bíó að sjá Prisoners (frábær mynd, mæli með henni) og ég er búín að syngja þrjú gigg með Stúkunum (á Fellsenda, á Höfða og í Akranesvita).
Annars er líka búið að vera mikið að gera í skólanum, mörg stór skil afstaðin og meira framundan. Miðannarkrísan mætti á svæðið upp úr miðjum október, með tilheyrandi sjálfsefa og tilgangsleysis-pælingum. Held ég hafi hrist hana af mér, og þarf að vinna slatta upp eftir hana. Ég hlakka mikið til þegar þessi vetur er búinn, kannski var pínu of snemmt að byrja á svona þungu námi strax, en þetta er þó ekki nema einn vetur. Ég finn mestan mun á því að það er erfitt að lifa í núinu þegar maður bætir fullu námi við allt sem fyrir var. Svo finn ég líka að þótt ég ætti nú aldeilis að vera vön að vera í fullu námi ofan á allt heila klabbið (halló 2002-2009) þá var miklu auðveldara að gera þetta þarna fyrir 10 árum. Ég eiginlega nenni ekki að standa í neinu svona auka núna! Auk þess sem ég skil alls ekki hvernig fólk getur einbeitt sér í námi nú til dags. Ég meina það, ef Facebook og snjallsímar hefðu verið til fyrir 10 árum, þá hefði ég aldrei náð að útskrifast úr grunnnámi...
En hvað um það, nokkrar myndir fyrir framtíðar-mig :)
![]() |
| Systkinin gera dúkinn kláran fyrir hrekkjavöku-afmælis-partý. |
![]() |
| ...svo fjölskyldan kæmi nú ekki syngjandi inn í vitlaust herbergi á sjálfan Afmælismorguninn mikla! |
![]() |
| AfmælisSól! Trúi því varla að þessi brosmilda snót sé orðin 10 ára, elska hana endalaust og til baka <3 td="">3> |
![]() |
| Afmælisveislan var haldin á sjálfan afmælisdaginn. Hrekkjavökuþema og 23 gestir mættu í búningum, verulegt stuð á E9 þann daginn. |
![]() |
| Við Snorralaug í Reykholti |
![]() |
| Húsafell!! |
![]() |
| Heitt kakó og sykurpúðar, algert möst í útilegum og sumarbústaðarferðum. |
![]() |
| Þessi myndi heitir: "Villtur hlaupari kastar mæðinni" |
![]() |
| Hollý-Hú í heita pottinum. Ljúfa líf, ljúfa líf :) |
![]() |
| Krakkarnir eru byrjuð að spila Scrabble við mömmu gömlu. Hjúkket! Þarf aðeins að þjálfa þau betur, vonandi verður þetta fjölskyldusportið í framtíðinni - *krossaputta* - |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


























